Horfa fram á við…jákvæðnin skiptir öllu…
7. október 2008
Jæja…ansi mikið búið að gerast á okkar litla landi síðustu daga….ríkið eignast hvern bankann á fætur öðrum….stórir fjárfestar fara illa út úr kreppunni….í raun er þetta staða sem manni óraði ekki fyrir að gæti komið upp….
Eitt skal ég viðurkenna fúslega…ég hef ekki nægt viðskiptalegt- eða fjárhagslegt vit til að reyna tjá mig á vitsmunalegum nótum um þessa kreppu og ástæður hennar….eina sem ég get gert er að hugsa pósitítvt og sjá ljósið við enda gangsins….það þýðir ekkert annað…við förum ekkert áfram í lífinu með því að festa okkur í neikvæðum hugsunum eða vonleysi…snúum bara bökum saman….gamla góða “samheldnin”….
Ég æta hér með að segja skilið við pólítískar umræður og vangaveltur…snúa mér að einhverju meira jákvæðu…..
ÍR-ingar eru að gera hrikalega góða hluti í handboltanum…..meistaraflokkurinn hefur unnið alla sína leiki…og voru í kvöld að slá Aftureldingu út úr bikarnum….voru reyndar ansi nálægt því að kasta unnum leik frá sér…en þetta eru ungir strákar og þeir eiga eftir að yfirstíga ansi margar hindranir í leið sinni að stabilisheringu sem alvöru handboltamenn…þetta var ein af þeim prófraunum í kvöld…góður sigur….
2.flokkurinn hjá mér byrjar að spila næstkomandi sunnudag…átti að vera síðastliðinn laugardag en því var frestað…tilhlökkunin er að verða nánast óbærileg…..get einfaldlega ekki beðið eftir þessum leik…verður snilld….
Skólinn gengur sinn vangagang….verkefnin hrannast upp núna og það verður nóg að gera næstu vikur og mánuði….sem er bara fínt…
Við Svabbi förum svo til Bolton eftir slétta viku….verðum með aðalliðinu á æfingum þar og fáum að hitta sérfræðinga sem koma að liðinu og skoða akademíu félagsins…verður alger snilld…verðum með liðinu í vikutíma…
Förum einnig á tvo leiki á Old Trafford….fyrst gegn W.B.A á laugardegi og svo gegn Celtic í Meistaradeildinni á þriðjudeginum þar eftir….það verður snilld….getur ekki klikkað að fara á Trafford…liðið er loksins farið að spila almennilegann bolta…
Ég verð að viðurkenna að ég brosti út í annað í morgun….það voru nefnilega fréttir þess efnis í gærkvöldi að sms-skeyti hefði gengið á milli manna þess efnis að bensínlíterinn myndi hækka um 50 krónur í dag….fólk hrannaðist á bensínsölur um allt land og fyllti bílinn…en viti menn…við fengum inn nokkur hundruð milljarða í morgun frá Rússneska ríkinu og bensínlíterinn LÆKKAÐI um 10-13 krónur…hefði verið ansi seigur bíti að tyggja hefði maður farið á dæluna í gærkvöldi….en svona er þetta…maður veit orðið ekkert hvernig efnahagsástandið verður eftir korter….þannig er staðan á landinu í dag….en vonandi horfir til bjartari tíma….jákvæðnin fer langt með okkur…verum pósitív…
Annars er Coach bara ferskur….eins og venjulega
Læt þetta nægja í bili…
Coachy-Out
Gulli kominn í landsliðið….
2. október 2008
Mikið hrikalega var ég ánægður þegar ég las íþróttafréttamiðla áðan. Þar kom fram að Gunnleifur Gunnleifsson væri kominn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikina gegn Hollandi og Makedóníu. Þetta eru hrikalega góð tíðindi að mínu mati…enda hef ég sagt í allt sumar að Gulli beri af öðrum markmönnum í deildinni hér heima. Það verður að teljast jákvætt að Óli Jó skuli hafa kippt honum inn í hópinn ásamt Árna Gauti sem hefur víst verið að standa sig vel í Noregi. Ég veit ekki hversu lítið álit ég hef á Kjartani Sturlusyni markmanni Vals. Hann hefur spilað síðustu landsleiki Íslands og staðið sig með hreinum hörmungum. Ég verð að viðurkenna að mér finnst Óli Jó vera úti á túni þegar hann talar um ósanngjarna umfjöllun um Kjartan. Óli segir m.a. að það hafi klárlega haft áhrif á frammistöðu hans í undanförnum leikjum og komið niður á honum í þeim verkefnum sem landsliðið stóð í. Sko…….í fyrsta lagi…..það hlýtur að segja sína sögu ef ALLIR fjölmiðlar, almenningur og aðrir knattspyrnumenn segja það nákvæmlega um frammistöðu Kjartans. Hann gaf Noregi mark á útivelli og var átakanlega slakur hér heima gegn Skotum. Það voru nokkur atriði í Skota-leiknum sem ég bókstaflega hlóg að. Þegar hann ætlaði sér að kasta boltanum fram á völlinn og hætti svo skyndilega við…og steinlá í vítateignum….þegar hann tók útspark í seinni hálfleik..þar sem honum fipaðist fótur og rann, boltinn endaði í fótum Hartley sem hefði skorað yfir Kjartan hefði Pálmi Rafn ekki tekið hann niður…..og svo…til að kóróna allt….þá voru 30 sekúndur eftir að leiknum og við áttum eitt tækifæri eftir til að jafna leikinn…þá sparkar Kjartan í innkast og leikurinn flautaður af….þvílík hörmung…
Ég er á því að íslenska landsliðið eigi að vera skipað þeim leikmönnum sem eru standa sig best að hverju sinni…skiptir þá einu hvort þeir spila á Íslandi, í Noregi, Danmörku, Englandi eða hvar sem er….mér hefur þótt val Landsliðsþjálfara á köflum vera út úr kortinu. Það verður þó að teljast jákvætt að hann sé að velja Gulla í hópinn núna…sem mér finnst vera besti markmaður sem við Íslendingar eigum….ég er líka á því að kostir Gulla séu mjög góðir kostir…hljómar e.t.v. asnalega….en ég get fært rök fyrir þessu og útskýrt þetta nánar…. Í fyrsta lagi er Gulli mjög öruggur á boltanum..hann er góður spyrnumaður…öruggur í sínum aðgerðum..hann er töffari (sem er mikill kostur..því hann notar það rétt)…góður á milli stanganna…öruggur í úthlaupum og mikill leiðtogi og karakter…frábært að fá Gulla í hópinn..besti kostur Gulla er náttúrulega sá að hann er ágætis félagi Coach-arans…ekki allir sem fá að njóta þess heiðurs
Annars er gamli fara ferskur…..kominn í helgarfrí og svona….
Coachy-OUT
Mánudagshugleiðingar
29. september 2008
Best að gefa þessu aðeins….
Kannski við hæfi að óska FH-ingum til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn…..glæsilegt hjá þeim….en guð minn góður hvað Keflavík klúðraði þessu í restina…Mér fannst rosalega merkilegt að öll umræðan snérist um það hversu mikinn karakter FH-ingar sýndu…Það er vissulega rétt, þetta var mjög sterkt hjá FH að klára þetta….en aðalmálið er það hversu lélegt þetta var hjá Keflavík. Ég var rosalega hrifinn af spilamennsku Keflvíkinga í sumar..spiluðu hraðann, ákveðinn, agaðann og skipulagðan bolta… FH-ingar hafa hinsvegar reynsluna af því að klára sín verkefni.
Ég held að menn geti verið sammála um það að tveir síðustu leikir FH í mótinu hafi verið skildusigrar. Spiluðu fyrst á móti lánlausum Blikum, sem eru mínir menn í Úrvalsdeildinni, guð minn almáttugur hvað þeir sýndu lítinn karakter í lok mótsins, voru í baráttu um að komast í Evrópukeppni fyrir 3 vikum síðan…enda svo mótið í 8.sæti…þvílík hörmung. Eftir Blika-leikinn spilaði FH við Fylki. Fylkir gjörsamlega búnir að vera úti á túni í sumar og höfðu ekki að neinu að keppa, þjálfara- og áhugalausir. Aftur á móti þurfti Keflavík bara að klára Fram heima…það mættu rúmlega 5000 manns á leikinn og horfðu á Fram-ara standa uppi sem verðskuldaða sigurvegara á laugardaginn. Þeir voru einfaldlega miklu hungraðari, beittari og glaðari í sínum aðgerðum. Virkilega flottir hlutir sem Toddi er að gera með Fram-liðið, hann er að mínu mati þjálfari ársins í Landsbankadeildinni.
Ég kíkti svo í bæinn um kvöldið með nokkrum af mestu toppmönnum sem ég þekki. Kúluvarps-Óðinn, Austfjarðartröllið-Jóhann Ingi og svo kíkti Hettu-Svavar einnig í heimsókn til mín en fór svo að fagna með sínum mönnum í FH á Fjörukránni. Einnig hitti ég lottóvinningshafann-Lýð og við tókum út helstu staðina…félgarnir glæsilegir…Sigurður Grétar, a.k.a. kúka-með-opna-hurð-alltaf var einnig á skrallinu með glæsimenninu Jónasi Hafþórssyni…voru reyndar fyrir norðan…en við sendum hvor öðrum hlýja-setu-strauma…
Við Svabbi erum að fara til Bolton Wanderers í eina viku í október…verðum með aðalliðinu þar að fylgjast með æfingum og öllum pakkanum…þetta er partur af námskeiði hjá okkur í Háskólanum….verður glæsilegt í meira lagi…fyrir allan peninginn..
Ég vil sérstaklega óska Geira og Stellu til hamingju með nýfædda gaurinn…Geiri sendi mér að sjálfssögðu mynd af kappanum í gær..hann er glæsilegur líkt og foreldrarnir….verður mikið glæsimenni sá gutti….
Einnig vil ég óska Svavari og Telmu til hamingju…þau eiga von á erfingja…það barn fær hettupeysu frá mér í skírnargjöf…ekki nokkur spurning…
Skora á fólk að hlusta á “All hope is gone” sem er nýja breiðskífan með Slipknot…frekar vandað rokk í gangi þar…
2.flokkurinn hjá mér byrjar að spila á næsta laugardag…fáum ekkert smá verkefni….Selfoss á útivelli…gerist ekki mikið meira krefjandi og spennandi…glæsilegt það…
Læt þetta nægja í bili….
Coachy-Out
“Blogg”…hmmmm
19. september 2008
Daginn….daginn…
ákvað að gefa þessum skrifum einn séns…mér finnst eins og ég hafi eitthvað að segja…
Ætla ekki að liggja á skoðunum mínum varðandi hin ýmsu málefni…kemur einhverjum sjálfsagt ekkert á óvar…
Er að klára HR í vor….verður fróðlegt….það er samt eins og maður hafi verið að kynnast krökkunum í gær….óhugnarlega fljótt að líða…ellin kallar…
Lýður er sammála mér….honum líður vel…
kominn með facebook….eftir áskorun….fer skemmtilega af stað….
Ryderinn er byrjaður….spurning hvort U.S.A verða með allt niðrum sig enn eitt mótið….
Geiri er að verða pabbi og Stella er að verða mamma….eru semsagt að eignast barn saman….eftir nokkra daga…
Chelski á sunnudag….erfitt að finna samansafn af mönnum sem ég hata jafn mikið og Chelski…í raun bara Livershite…
Fyrsti leikurinn hjá ÍR í handboltanum í kvöld…..ef Eyjamenn komast þ.e.a.s…..Gubbólfur tekur endasprett með þá….
Hjalti Már Hauksson er að fara halda uppi fjörinu á lokahófi KA í fótboltanum annaðkvöld….
Reyni svo að fylgja þessu eftir….tek við öllum tillögum af skrifum….
Coachy OUT